Nánar
 
30.5.2006 00:49:00
Barnadagur 2006

Hinn árlegi barnadagur fyrirtækisins var haldinn þann 30. maí síðastliðinn.  Öllum börnum í 1 bekk grunnskólans var boðið að skoða fyrirtækið.  Byrjað var á að skoða bræðsluna og þar bauðst börnunum að fara upp í turnana sem þeim þótti mjög gaman, því næst lá leiðin á nótastöð Egersund á Íslandi og eftir það um borð í Aðalstein Jónsson og í frystihúsið, en þar skoðuðu börnin alls konar fisktegundir.  Þessum degi lauk svo með pizzu veislu á skrifstofu Eskju þar sem Andri Þórhallsson tók lagið með þeim og lukkaðist það mjög vel.

 

 

 

 

 
Stækka texta Minnka texta Prenta Símanúmer Ábendingar
 
Strandgata 39 - Sími 470 - 6000 - Fax 470 - 6001 - eskja@eskja.is