Frystihús Eskju hefur verið lokað tímabundið og hefst vinnsla aftur að fullum krafti mánudaginn 21.ágúst. Sumarstarfsfólk hefur verið að störfum við hin ýmsu þarfaverk.
Hólmatindur hefur verið í vélarviðhaldi síðustu vikur, en hefur nú hafið veiðar á ný og
er að veiða ýsu sem fer á markað.
Aðalsteinn Jónsson er á síldarfrystingu og landar í dag.