Í dag, 1. september gengur í garð kvótaárið 2006/2007. Dagsetning þessi hefur reynar minna gildi fyrir Eskju samanborið við mörg önnur sjávarútvegsfyrirtæki þar sem kvótaúthlutun uppsjávarfisktegunda er ekki bundin þessari dagsetningu. Loðnuúthlutun var venjulega um mánaðarmótin júní-júlí ár hvert en hefur undanfarin tvö ár færst æ nær vetrarvertíð. Kolmunnakvóta er úthlutað í byrjun árs. Úthlutun á kvóta í norsk-íslensku síldina er oft á ferðinni í byrjun apríl.
Úthlutun á helstu tegundum til Eskju hf 1.september 2006 Þorskur 2.442 tonn Ýsa 848 tonn Ufsi 1.170 tonn Karfi 503 tonn |