Nánar
 
27.9.2006 08:52:01
Líkamsrækt

Nú á næstu dögum mun Iceland Spa & Fitness opna nýja og glæsilega líkamsræktarstöð í sundlauginni hér á Eskifirði.

Í tilefni af því hefur Eskja ákveðið að bjóða starfsfólki félagsins niðurgreidd árskort í stöðina og munu kortin einnig gilda í aðrar starfsstöðvar Iceland Spa & Fitness sem eru eftirfarandi:

 

Baðhúsið, Brautarholti, Reykjavík - Heilsulind fyrir konur sem býður uppá líkamsrækt og spa

 

Aflhúsið, Reyðarfirði - þar er boðið uppá líkamsræktarsal, opna tíma og námskeið.

 

Betrunarhúsið, Garðatorgi, Garðabæ - Þægileg hverfisstöð

 

Þrekhúsið, Frostaskjóli við KR völlinn - Þægileg hverfisstöð í Vesturbænum

 

Sporthúsið, Dalsmára, Kópavogi - Alhliða líkamsrækt, þar er boðið uppá stærstu stundaskrá landsins, tækjasal, pott, gufur, skvass, körfubolta, fótbolta, körfubolta, Wellness Café (heilsubar), sólbaðstofa, hárgreiðslustofa & nuddstofa.

 

 

Þá veita kort hjá Iceland Spa & Fitness einnig aðgang í eftirfarandi stöðvar:

Ræktin, Akureyri

Sporthöllinn, Höfn

 

Það er von forsvarsmanna Eskju að sem flestir starfsmenn félagsins jafnt sjómenn sem starfsfólk í landi sjái sér hag í að stunda reglulega líkamsrækt sem stuðlar að betri heilsu og vellíðan.

 

 
Stækka texta Minnka texta Prenta Símanúmer Ábendingar
 
Strandgata 39 - Sími 470 - 6000 - Fax 470 - 6001 - eskja@eskja.is