Árið 2006 fór mjög rólega af stað hjá Eskju hf veiðilega séð. Loðnukvóti var ekki gefinn út fyrr en um mánaðarmótin janúar febrúar og í lok vertíðar var ljóst að veiði á þessari vetrarvertíð var sú minnsta síðan árið 1991.
Heildarafli skipa Eskju árið 2006 var 95.369 tonn að verðmæti 1.859 mkr.
Hólmatindur SU-1 stundaði bolfiskveiðar allt árið og gekk veiði hans að jafnaði vel þó síðustu mánuðir ársins hafi verið frekar erfiðir.
Aðalsteinn Jónsson SU-11 hóf veiðar og vinnslu á loðnu í janúar, hélt til kolmunnaveiða í mars og síðan til veiða og vinnslu á norsk-íslenskri síld í júní. Aðalsteinn endaði svo árið með veiðum á íslenskri síld í nóvember.
Jón Kjartansson SU-111 hóf loðnuveiðar í febrúar og fór síðan á kolmunnaveiðar í lok febrúar. Jón er aflahæsta skip Íslendinga á kolmunna árið 2006 með 32.084 tonn.
Guðrún Þorkelsdóttir SU-211 fór til kolmunnaveiða um miðjan febrúar og fór einn loðnutúr í lok febrúar og stundaði svo kolmunnaveiðar fram í júlí 2006.
| Skip | Tonn | Mkr |
| Hólmatindur SU-1 | 4.366 | 452 |
| Aðalsteinn Jónsson SU-11 | 28.010 | 730 |
| Jón Kjartansson SU-111 | 40.923 | 441 |
| Guðrún Þorkelsdóttir SU-211 | 22.070 | 236 |