Í sumar verður golfkennsla á vegum Golfklúbbs Eskifjarðar.
Starfsfólki Eskju og mökum er boðið að taka þátt í kennslunni sér að kostnaðarlausu.
Kylfur er hægt að fá lánaðar á golfvellinum, ef þörf er á.
Tímar í kennsluna miðast við þarfir hvers og eins.
Ef þú starfsmaður góður hefur áhuga eða maki þinn þá vinsamlega hafðu samband við Höllu 470-6016 eða Sigurð 470-6097 fyrir 1. júní n.k.
Einnig er hægt að skrá sig á eskja.is.