Skip Eskju eru nú farin til kolmunnaveiða að lokinni loðnuvertíð. Ekki verður þó sagt að veiðisvæðið sé við bæjardyrnar þar sem skipin þurfa að sækja aflann á alþjóðlegt veiðisvæði vestur af Írlandi og er siglingin hvora leið u.þ.b. 650 - 700 sjómílur og tekur það skipin 2 - 3 sólarhringa á sigla hvora leið eftir veðri, en þau eru oft válynd á þessum slóðum enda hvergi skjól að fá. Menn gera sér þó vonir um að kolmunninn fari að veiðast nær Íslandi er kemur fram í aprílmánuð. Aðalsteinn Jónsson frystir kolmunnann um borð auk þess að koma með afla til bræslu, en Jón Kjartansson veiðir eingöngu til bræðslu. Kolmunnakvóti Eskju er tæp 45 þúsund tonn fyrir árið 2008
