19.12.2008 12:44:59
Eskja fær viðurkenningu
Lionsklúbbur Eskifjarðar afhenti í gær Eskju viðurkenningu Lionshreyfingarinnar vegna stuðnings félagsins við ýmis góð málefni er Lionsklúbburinn hefur staðið fyrir mörg undanfarin ár. Má þar nefna margháttuð verkefni til kaupa á búnaði fyrir heilsugæslu auk annarra verkefna. Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa úr stjórn Lionsklúbbs Eskifjarðar ásamt forráðamönnum Eskju við afhendinguna. 
|