Nánar
 
29.1.2009 14:30:11
Skipin til veiða á gulldeplu

Skip Eskju, Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson hafa hætt kolmunnaveiðum í bili og eru farin til veiða á gulldeplu sem er nýjasta viðbótin við flóru Íslenskra uppsjávarfiska. Menn hafa lengi vitað að þessi fiskur hefur gengið hér upp að landinu og nokkrum sinnum hafa verið gerðar tilraunir til að veiða hann án teljandi árangurs hingað til en veiðarfærum, tækni og þekkingu fleygir fram og nú virðist sem að okkar dugmiklu og útsjónarsömu sjómenn séu að ná tökum á þessu.  Gulldepla sem er mjög smár fiskur hentar mjög vel til bræðslu en að sjálfsögðu mun verða skoðað hvort markaður sé fyrir hann til manneldis.

 

  1

 
Stækka texta Minnka texta Prenta Símanúmer Ábendingar
 
Strandgata 39 - Sími 470 - 6000 - Fax 470 - 6001 - eskja@eskja.is