Skip Eskju hf, Ađalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson komu til hafnar um helgina međ 3200 tonn af góđum kolmunna. Ađalsteinn Jónsson kom međ fullar frystilestar af heilfrystum kolmunna til manneldis og Jón landađi um 2000 tonnum í fiskimjölsverksmiđjuna. Gengiđ hefur vel hjá skipum félagsins á kolmunnamiđunum ţó einstaka brćlur hafi gert sjómönnum okkar erfitt fyrir. Langt er ađ sćkja kolmunnann og tekur sigling á miđin um tvo sólarhringa. Félagiđ á eftir um 8500 tonn af kolmunna og stefnt er ađ kolmunnakvótinn klárist í byrjun maí. Jón Kjartansson hefur fiskađ um 9000 tonn af kolmunna ţađ sem af er ári og Ađalsteinn Jónsson hefur fiskađ um 4700 tonn af kolmunna og ţar af hefur um 2200 tonn veriđ heilfryst til manneldis. Strákarnir á Ađalsteini hafa veriđ ađ gera tilraunir međ ađ hausskera og slógdraga kolmunna sem lofar góđu en útlit er fyrir ađ markađur sé til fyrir slíkar afurđir.