Nánar
 
3.7.2009 20:46:03
Aðalsteinn og Huginn mætast í höfninni á Eskifirði

Það var tignarleg sjón þegar uppsjávarfrystiskipin Aðalsteinn Jónsson SU 11 og Huginn VE 55 mættust í höfninni á Eskifirði. Aðalsteinn var að koma inn til löndunnar fullur af síld og makríl en Huginn á leið á miðin eftir að hafa landað fullfermi af síld og makríl til manneldis og afskurði í fiskimjölsverksmiðjuna á Eskifirði. Eins og sjá má á myndinni sem Hafsteinn Hinriksson viðhaldsstjóri fiskimjölsverksmiðjunnar tók eldsnemma um morguninn var alveg blankalogn og fjörðurinn spegilsléttur þegar tvö af glæsilegustu uppsjávarskipum flotans mættust.

 

 

 
 
 
 
 
 
Stækka texta Minnka texta Prenta Símanúmer Ábendingar
 
Strandgata 39 - Sími 470 - 6000 - Fax 470 - 6001 - eskja@eskja.is