19.12.2009 12:33:48
Eskja hf. styrkir hjálparsjóð Eskifjarðarkirkju um 1 milljón kr.
Eskja hf. styrkti hjálparsjóð Eskifjarðarkirkju um 1 milljón króna sem vonandi kemur sér vel fyrir jólin. Markmiðið með styrknum er að hjálparsjóðurinn hafi bolmagn til að veita efnaminni fjölskyldum á Eskifirði og nágrenni aðstoð um hátíðarnar. Davíð Baldurson sóknarprestur veitti styrknum móttöku í dag og var afar þakklátur fyrir hönd hjálparsjóðsins.
|