Burðargeta Aðalsteins eykst
Aðalsteinn Jónsson SU 11 landaði fullu skipi af frystum kolmunna um helgina. Aðalsteinn landaði um 610 tonnum af frystum kolmunna og 240 tonnum af afskurði til vinnslu í fiskimjölsverksmiðju Eskju hf. Þetta var í fyrsta skipti sem Aðalsteinn landaði eftir að frystilestum skipsins var breytt í páskafríinu. Helsta breytingin var sú að búið var til nýtt frystirými í klefa á vinnsludekkinu með því að koma þar upp frystibúnaði og færiböndum. Þetta rými hafði ekki verið nýtt en með þessari einföldu breytingu stækkar burðargeta skipsins úr 540 tonnum í 610 tonn eða um rúm 70 tonn. Við hjá Eskju hf. erum gríðarlega ánægðir með þessa breytingu enda töluverð hagræðing fólgin í því að auka afkastagetu
Aðalsteins með þessum hætti og bæta nýtinguna á skipinu.
