1.2.2006 10:53:10
Skip Eskju halda til loðnuveiða
Aðalsteinn Jónsson SU-11 og Jón Kjartansson SU-111 er nú farnir til loðnuveiða eftir að gefinn var út loðnukvóti síðdegis í gær. Aðalsteinn hélt til veiða í gærkvöldi og hífði í morgun um 100 tonn af góðri loðnu og er frysting á henni hafin um borð. Fyrir um viku síðan landaði Aðalsteinn sínum fyrsta afla eftir nokkra daga prufutúr eða um 320 tonnum af fallegri loðnu sem framleidd var fyrir Rússlandsmarkað. Skipið hefur í alla staði reynst mjög vel og vinnslan gengið vonum framar. 
|