| 
Mjöl- og lýsisvinnsla Eskju hóf starfsemi árið 1954 með rekstri lítillar beinamjölsverksmiðju. Þegar síldveiðar komast í algleyming út af Austfjörðum uppúr 1960 er gamla verksmiðjan orðin alltof lítil og árið 1966 er byggð ný mjög öflug verksmiðja sem síðan hefur gengið í gegnum mikla endurnýjun sem hófst 1994 og lauk árið 2000 með uppsetningu nýrra soðkjarnatækja. Afköst eru 1.100 tonn af hráefni á sólarhring og hægt er að geyma allt að 20.000 tonnum af hráefni í geymslum verksmiðjunnar í einu. Starfsmenn eru að jafnaði um 20 og er unnið á vöktun allan sólarhringinn. Verksmiðjan er búin öllum þeim besta tækja- og tæknibúnaði sem fáanlegur er til framleiðslu mjöl- og lýsisafurða og getur hún með loftþurrkun við lágan hita framleitt hágæðamjöl sem m.a. er notað til framleiðslu fiskeldisfóðurs. Þá tryggir þessi búnaður að hin hvimleiða mengun sem gjarnan fylgdi þessari vinnslu er úr sögunni. Gæðakröfur í vinnslunni eru miklar og rekur verksmiðjan eigin rannsóknastofu auk þess að styðjast við HACCP gæðakerfi sem tryggir að afurðir Mjöl- og lýsisvinnslunnar séu ávallt af þeim gæðum sem viðskiptvinir hennar óska. Vinnslan fékk í ársbyrjun 2004 FEMAS vottun á framleiðslu sína fyrst verksmiðja á Íslandi.
Yfirmaður mjöl- og lýsisvinnslu er Jens Garðar Helgason Telefon: 551 9099 - Gsm: 899 4348- Tölvufang: jens@fiskimid.is |