3.3.2010
Hrognataka í fullum gangi
Unnið er að hrognatöku hjá Eskju hf. um þessar mundir og búið er að skera um 2200 tonn af loðnu og eru bæði skip félagsins væntanleg til Eskifjarðar með hráefni til vinnslu. Aðalsteinn Jónsson SU 11 er á landleið með fullfermi af frystri loðnu og hrognaloðnu sem unnin verður í landi. Jón Kjartansson er svo væntalegur í kjölfarið með afla til hrognatöku. Vel hefur gengið hjá Aðalsteini á vertíðinni en hann hefur fryst um 2200 tonn af loðnu í febrúar. Skipið er væntanlegt til hafnar úr sinni 5 veiðiferð í mánuðinum. Að löndun lokinni er stefnt að því að Aðalsteinn fari á kolmunna. Jón Kjartansson er búinn að landa tvisvar á vertíðinni og mun klára loðnukvóta félagsins sem fer allt í hrognatöku. Allt kapp hefur verið lagt á að nýta aflaheimildir félagsins í loðnu sem best og hámarka verðmætin með því að ná sem mestu af hrognum til manneldis.
meira ->
2.2.2010
Ný bílavog tekin í notkun
Mjöl og lýsisverksmiðja Eskju hf. setti upp nýja bílavog fyrir neðan verksmiðjuna sem kemur til með að þjónusta mjölútskipanir á vegum félagins í framtíðinni. Það er mikil hagræðing fólgin í þessari framkvæmd því bílarnir hafa þurft að keyra langa vegalengd til að komast á hafnarvogina og út í mjölskip. Í framtíðinni mun keyrslan eiga sér stað á hafnarsvæði verksmiðjunnar og það mun einnig stuðla að meira umferðaröryggi á Eskifirði. Á meðfylgjandi myndum má sjá framkvæmdirnar.
meira ->
7.1.2010
Skip Eskju hf. á kolmunna
Bæði skip Eskju hf. eru kominn á kolmunna suður af Færeyjum. Aðalsteinn Jónsson SU 11 hélt til veiða 2. janúar og er byrjaður að frysta ágætis kolmunna. Jón Kjartansson SU 111 kom á miðinn í fyrradag og hífði 200 tonn í fyrsta holi. Eskja hf. hefur um 16.500 tonn af kolmunna til ráðstöfunar í ár og reikna má með að um 30% af aflanum fari til manneldis. Aðalsteinn frysti um 4500 tonn af kolmunna í fyrra og stefnt er að því að gera betur í ár.
meira ->
|